Blog

Gleðilegt sumar *Ü*

Í tilefni sumarsins verður að sjálfsögðu haldinn KSF fundur á Háaleitisbraut á laugardaginn, 26. apríl. Að þessu sinni verður fundurinn með öðru sniði, eða Lofgjörðar-, bæna- og vitnisburðarstund. Tónlist verður í rólegri kantinum og frjálst verður að hafa vitnisburð eða annað sem knýr á dyrnar. Fundur hefst að sjálfsögðu á slaginu 20:30 og búumst við…
Read more


24. April 2008 0

Ný dagskrá

Ný dagskrá hefur litið dagsins ljós og er staðsett undir ,,Dagskrá” hér ofarlega, hægra megin á síðunni. Hún er ekki full unnin en það er gott í henni *Ü*


21. April 2008 3

“Það er gott að búa í Kópavogi”

Það verður sem sagt heimafundur hjá undirrituðum, Furugrund 46, í kvöld. Fundurinn hefst kl. 20:30. Herra Jón Ómar Gunnarsson ætlar að vera með hugleiðingu, tónlistarhópur félagsins stendur fyrir miklum söng, NÝ STJÓRN VERÐUR MEÐ GEGGJAÐ SKEMMTIATRIÐI og heyrst hefur að veitingar hafi undanfarna daga streymt í hús… Það verður sem sagt nóg um að vera…
Read more


19. April 2008 3

Ný stjórn tekur við

Á fundi í kvöld, laugardaginn 12. apríl, mun ný stjórn KSF taka formlega við stjórnartaumum félagsins. Ræðumaður kvöldsins er sr. Ólafur Jóhannsson og verður vafalaust áhugavert að hlusta á hann tala. Fundurinn verður á Háaleitisbraut kl. 20:30. Sjáumst 🙂


12. April 2008 0

Ný stjórn KSF

Á aðalfundi KSF laugardaginn 5. apríl 2008 var kosin ný stjórn félagsins. Stjórnina skipa: Þóra Jenny Benónýsdóttir, formaður Guðlaug Jökulsdóttir, ritari og tengiliður við KSS Guðmundur Karl Einarsson, gjaldkeri Arnór Heiðarsson, tónlistarfulltrúi og tengiliður við KSS Hlín Stefánsdóttir, bænafulltrúi


6. April 2008 3